Þessi síða er með takmarkaðan stuðning fyrir þinn vafra. Við mælum með að skipta yfir í Edge, Chrome, Safari eða Firefox.

Andlitsskrúbbur

4.490 kr

Vörulýsing

Kaffikorgur er frábær til að hreinsa húðina og inniheldur mikið af andoxunarefnum.

Andlitsskrúbburinn frá Grums er frábær fyrir bæði venjulega og þurra húð. Hann mun skilja húðina eftir hreina, mjúka og fulla af raka.


Vara sem passar við:

Andlitsmjólk

4.100 kr

Out of stock

14 daga skilafrestur

Þessi vara er unnin úr endurunnum hráefnum

Andlitsskrúbbur

4.490 kr
Nánari upplýsingar

Notkun

Vöruna er hægt að nota bæði sem andlitsskrúbb og sem andlitsmaska. Notað 1-2 sinnum í viku. Nuddað er lítið magn á rakt eða blautt andlit með mjúkum hringhreyfingum. Skolið vandlega með volgu vatni og forðist að nota sápu eftir á þar sem það getur fjarlægt nærandi olíurnar úr vörunni og þurrkað húðina.

Til að auka raka og næringu í húðinni má nota skrúbbinn sem maska með því að leyfa honum að liggja á húðinni í 15-20 mínútur.

Innihald

Butyrospermum Parkii Oil, Caprylic/Capric Triglyceride, Glycerin, Coffea Robusta Seed Powder, Ricinus Communis Seed Oil, Diethylhexyl Carbonate, Cera Alba, Theobroma Cacao Seed Butter, Macadamia Ternifolia Seed Oil, Aqua, Sucrose Lactate, Rhus Succedanea Fruit Cera.

Hagnýtar upplýsingar

Djúphreinsir + maski

0% ofnæmisvakar, paraben, ilmefni, litarefni

Fyrir venjulega eða þurra húð

Ekkert örplast

Náttúruleg innihaldsefni

Græn löggild vara

Framleidd í Danmörku

Um Grums

Danskt vörumerki

Grums var stofnað árið 2016 af Simon og Rasmus í Árósum í Danmörku. Grums framleiðir hágæða sjálfbærar húðvörur úr kaffikorgi frá La Cabra Coffee Roasters í Árósum, Danmörku. Þeir trúa því að hægt sé að búa til húðvörur út frá sjálfbæru hugarfari og hráefnum án þess að skerða gæði, útlit, áferð eða eiginleika.

Umhverfið í fyrirrúmi

Allar vörurnar frá Grums eru ‘Green Certified’ og 100% vegan, nema andlitsskrúbburinn en hann er með býflugnavaxi og er því eina varan sem er ekki vegan. Vörurnar eru ekki prófaðar á dýrum, umbúðirnar eru úr „Green plastic“. Búnar til úr PE- plasti - plöntu sykrum (plant based plastic) og eru 100% endurvinnanlegar. 

Gefa til baka

Grums er meðlimur „1% for the planet“ sem þýðir að þeir gefa 1% af ágóða sínum til góðgerðasamtaka umhverfismála til að hjálpa jörðinni.

Karfa

Congratulations! Your order qualifies for free shipping Ef þú verslar fyrir 15.000 kr meira þá færðu fría heimsendingu.
No more products available for purchase